Í morgun komu tveir fulltrúar foreldrafélags Sunnulækjarskóla færandi hendi með nýtt borðtennisborð. Gamla borðið var orðið laskað af mikilli notkun og því kemur gjöfin að góðum notum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa foreldrafélagsins, Óskar og Hönnu Rut ásamt Kristni Gamalíel sem aðstoðaði við samsetningu og skólastjóra.