Það var mikið fjör í Sunnulækjarskóla í dag. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum af ýmsum toga.
Dagurinn byrjaði á vinasöngstund í Fjallasal. Einnig voru afhentar viðurkenningar fyrir góðan árangur í Lífshlaupinu. Hóparnir héldu síðan hver á sitt svæði þar sem kennsla var með frekar óhefðbundnu sniði.