Skáknámskeið í Fischersetri

Sunnudaginn 20. september nk. kl. 11:00 hefst skáknámskeið fyrir grunnskólabörn í Fischersetri.  Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg, Skákskóla Íslands og Skákfélag Selfoss og nágrennis. Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands hefur yfirumsjón með kennslunni. Þetta verða 10 skipti eða einu sinni í viku og þá á sunnudögum frá 11:00 – 12:30 og kostar allt námskeiðið 5000 kr. 

Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast hringið í síma 894-1275 eða sendið tölvupóst á  netfangið fischersetur@gmail.com

Fischersetrið á Selfossi.