Föstudagar eru sköpunardagar hjá 2. bekk. Þá er nýttur efniviður sem til fellur hér og þar og kostar ekkert. Áherslan er á ferlið, að finna út hvernig hægt er að bjarga sér og hvað hægt er að nota í staðinn fyrir það sem ekki er til. Útkoman er margskonar og skemmtileg, ýmist hengd upp eða borin heim.