Skólasetning í Sunnulækjarskóla

Sunnulækjarskóli verður settur  þriðjudaginn 24. ágúst 2021.

Skólasetning verður með óhefðbundnum hætti v/COVID-19. Meðfylgjandi eru upplýsingar um skipulag og tímasetningu.

Kl. 09:00  Nemendur í 2. – 4. bekk – f. 2012 – 2014.

Kl. 09:45  Nemendur í 5. – 6. bekk – f. 2010 – 2011.

Kl. 10:30  Nemendur í 7. – 8. bekk – f. 2008 – 2009.

Kl. 11:15  Nemendur í 9. – 10. bekk – f. 2006 – 2007.

Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í Fjallasal en síðan munu nemendur hitta umsjónarkennara. Vegna smitvarna er ekki mögulegt að taka á móti foreldrum á skólasetningu Sunnulækjarskóla.

Nemendur 1. bekkjar mæta ekki við skólasetningu að þessu sinni. Þeir verða boðaðir sérstaklega ásamt forráðamönnum til viðtals við umsjónarkennara.