Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
… í desember
1. desember – Fullveldisdagurinn 8. – 11. desember – Þemadagar Sunnulækjarskóla verða í anda heimsmarkmiða Sameinuðuþjóðanna um sjálfbæra þróun. Freakari upplýsingar má finna á vef um Markmið sameinuðuþjóðanna og vefsíðu þemadagana í Sunnulækjarskóla: Þemadagar Sunnulækjarskóla 18. desember – Litlu jólin
Lesa Meira >>Jólafrí
Ágætu foreldra og nemendur Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegar jóla og farsæls komandi árs. Hér fylgir mynd af árlegu kertasundi sem nemendur Sunnulækjarskóla þreyttu í liðinni viku. Skólastarf hefst að nýju mánudaginn 4. janúar 2016, samkvæmt stundaskrá. Jólakveðja, […]
Lesa Meira >>Ritunarsamkeppni í 10. bekk
Ritunarsamkeppni var nýlega haldin í 10. bekk í íslensku og stóðu nemendur sig með prýði. Elísa Rún Siggeirsdóttir varð hlutskörpust með söguna „Logi í beinni“, í öðru sæti var Arndís María Finnsdóttir með „Hvítan kjól“ og þriðja sætið hlaut Ragna […]
Lesa Meira >>Nemendur styrkja sjóð Selfosskirkju
Nokkrir 8. bekkingar í Sunnulækjarskóla ákváðu að leggja styrktarsjóð Selfosskirkju lið og seldu mandarínur og piparkökur á kaffistofu starfsfólks. Verkefnið unnu þær Helena, Ísabella Sara, Karen Lind og Katrín Birna í 8. ÞMB í tengslum við þemadaga um heimsmarkmið Sameinuðu […]
Lesa Meira >>Menningarheimsókn í Fischersetrið
Nemendum í 10. bekk í Árborg var boðið í menningarheimsókn í Fischersetrið á Selfossi síðastliðinn föstudag, 4. desember. 10. bekkir í Sunnulækjarskóla örkuðu snjóinn á Austurveginn ásamt íslenskukennurum og þar voru þeir fræddir um sögu hússins, Gamla-bankans, og skoðuðu safnið […]
Lesa Meira >>Foreldrafélagið gefur endurskinsvesti
Fulltrúar foreldrafélags Sunnulækjarskóla komu færandi hendi í skólann okkar í vikunni. Erindið var að færa öllum nemendum í 1. bekk endurskinsvesti. Lögreglan var með í för og aðstoðaði við afhendinguna. Allir voru glaðir með gjöfina og kunnum við foreldrafélagi skólans bestu […]
Lesa Meira >>… í nóvember
16. nóvember Dagur íslenskrar tungu 19. nóvember Starfsdagur 20. nóvember Foreldradagur 27. nóvember Skreytingardagur
Lesa Meira >>Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla
Í dag skreyttum við skólann okkur hátt og lágt og færðum hann í jólabúninginn. Dagurinn hófst með söngstund í Fjallasal þar sem flautukór úr 3. bekk Sunnulækjarskóla hóf dagskrána. Skreytingadagurinn gekk mjög vel fyrir sig og bros var á hverju andliti. […]
Lesa Meira >>Ég negli og saga
Nemendur í 3. bekk í hönnun og smíði eru miklir listamenn hér er fríður og glaðvær hópur með eitt af verkum sínum á smíðaverkstæðinu eins og við köllum smíðastofuna okkar.
Lesa Meira >>Við varðeldana voru …
Það er líf og fjör hjá strákunum í 4. bekk í útinámi og leikni – hér er verið að fá sér heitt kakó og poppa popp. Nú er komið að smiðjuskiptum og ný verkefni til að takast á við í öðrum verkgreinum. […]
Lesa Meira >>MAST Matvælastofnun heimsótt
Strákarnir í 7. bekk í útinámi og leikni (haustönn) kynntu sér starfsemi Matvælastofnun (MAST) á Selfossi. Hjalti Andrason fræðslustjóri fór yfir helstu verkefni sem stofnunin sinnir. Við þökkum Andra og starfsfólki MAST kærlega fyrir móttökurnar.
Lesa Meira >>