Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Nemendur styrkja sjóð Selfosskirkju
Nokkrir 8. bekkingar í Sunnulækjarskóla ákváðu að leggja styrktarsjóð Selfosskirkju lið og seldu mandarínur og piparkökur á kaffistofu starfsfólks. Verkefnið unnu þær Helena, Ísabella Sara, Karen Lind og Katrín Birna í 8. ÞMB í tengslum við þemadaga um heimsmarkmið Sameinuðu […]
Menningarheimsókn í Fischersetrið
Nemendum í 10. bekk í Árborg var boðið í menningarheimsókn í Fischersetrið á Selfossi síðastliðinn föstudag, 4. desember. 10. bekkir í Sunnulækjarskóla örkuðu snjóinn á Austurveginn ásamt íslenskukennurum og þar voru þeir fræddir um sögu hússins, Gamla-bankans, og skoðuðu safnið […]
Foreldrafélagið gefur endurskinsvesti
Fulltrúar foreldrafélags Sunnulækjarskóla komu færandi hendi í skólann okkar í vikunni. Erindið var að færa öllum nemendum í 1. bekk endurskinsvesti. Lögreglan var með í för og aðstoðaði við afhendinguna. Allir voru glaðir með gjöfina og kunnum við foreldrafélagi skólans bestu […]
… í nóvember
16. nóvember Dagur íslenskrar tungu 19. nóvember Starfsdagur 20. nóvember Foreldradagur 27. nóvember Skreytingardagur
Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla
Í dag skreyttum við skólann okkur hátt og lágt og færðum hann í jólabúninginn. Dagurinn hófst með söngstund í Fjallasal þar sem flautukór úr 3. bekk Sunnulækjarskóla hóf dagskrána. Skreytingadagurinn gekk mjög vel fyrir sig og bros var á hverju andliti. […]
Ég negli og saga
Nemendur í 3. bekk í hönnun og smíði eru miklir listamenn hér er fríður og glaðvær hópur með eitt af verkum sínum á smíðaverkstæðinu eins og við köllum smíðastofuna okkar.
Við varðeldana voru …
Það er líf og fjör hjá strákunum í 4. bekk í útinámi og leikni – hér er verið að fá sér heitt kakó og poppa popp. Nú er komið að smiðjuskiptum og ný verkefni til að takast á við í öðrum verkgreinum. […]
MAST Matvælastofnun heimsótt
Strákarnir í 7. bekk í útinámi og leikni (haustönn) kynntu sér starfsemi Matvælastofnun (MAST) á Selfossi. Hjalti Andrason fræðslustjóri fór yfir helstu verkefni sem stofnunin sinnir. Við þökkum Andra og starfsfólki MAST kærlega fyrir móttökurnar.
5. bekkur les á Hulduheimum
Í dag fór 5. bekkur Sunnulækjarskóla í heimsókn til leikskólabarna á Hulduheimum og las fyrir þau upphátt úr barnabókum. Nemendurnir skiptu sér á deildir og lásu fyrir misstóra hópa sem greinilega höfðu mjög gaman af. Börnin sátu stillt og prúð og […]
Foreldradagur og starfsdagur
Foreldrafundir í Sunnulækjarskóla Kæru foreldrar og forráðamenn. Ykkur er hér með boðið til foreldrafundar í Sunnulækjarskóla þann 20. nóvember n.k. Sú breyting er nú gerð frá fyrri árum að viðtalstímum er ekki lengur úthlutað á hvern nemanda heldur […]
