Val næsta vetur
Foreldrar/Forráðamenn nemenda í verðandi 8., 9. og 10. bekk Sunnulækjarskóla Nemendur fengu heim með sér námsvalsblöð fyrir veturinn 2012 – 2013.Vinsamlegast farið yfir valið með börnunum og síðan á að skila þeim aftur, útfylltum, til ritara eigi síðar en þriðjudaginn 15. maí nk.
5. bekkur í fuglaskoðun
Í gær fóru nemendur 5. bekkjar í fuglaskoðunarferð útí móa og við sáum/heyrðum í einum 13 fuglategundum. Nemendur voru mjög áhugasamir og líklega eru í hópnum eru nokkrir upprennandi fuglafræðingar.
2. bekkur Sunnulækjarskóla heimsækir Vallaskóla
Í gær, þriðjudag, fóru nemendur 2. bekkjar í Sunnlækjarskóla að heimsækja kollega sína í Vallaskóla. Ferðin gekk í alla staði vel og móttökur voru skemmtilegar. Nemendur nutu ferðarinnar og hittu marga nýja vini í Vallaskóla. Takk fyrir okkur
Rois et Reins – Princes et Princesses de France
11 nemendur tóku þátt í frönskunámskeiði fyrir tvítyngd börn í vetur. Auk æfinga í lestri, málfræði og ritun vann hópurinn með þema: Konungar og drottningar – prinsar og prinsessur Fyrir elstu nemana var áherslan lögð á sögu konunga Frakklands frá 847 til 1453. Í lok vetrar setti hópurinn upp sýningu á bókasafninu. Á sýningunni má sjá […]
10. bekkur tínir rusl
Í gær fóru nemendur 10. bekkjar Sunnulækjarskóla út að tína rusl í bænum. Þeir tíndu rusl meðfram nokkrum götum á Selfossi og af nógu var að taka. Framtakið er hluti af fjáröflun fyrir skólaferðalagið sem foreldratenglar í 10. bekk skipuleggja. Árborg greiðir nemendum fyrir verkið og rennur peningurinn í útskriftarferð hópsins í vor. .