Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

112 dagurinn

By Hermann | 17. febrúar 2020

Á 112 daginn fengum við góða heimsókn í 3. bekk frá Brunavörnum Árnessýslu. Nemendur í 3. bekk tóku þátt í eldvarnargetraun í desember og var einn nemandi úr Sunnulækjarskóla dreginn úr innsendum réttum miðum.  Var það Ásta Kristín Ólafsdóttir nemandi í 3. SE sem fékk afhent verðlaun.

Lífshlaupið

By Hermann | 4. febrúar 2020

Grunnskólakeppnin, landskeppni í hreyfingu hefst á morgun 5. febrúar og stendur yfir í tvær vikur. Skráð er öll miðlungserfið eða erfið hreyfing sem stunduð er yfir daginn. Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 60 mínútur, fyrir 15 ára og yngri, sem skipta má upp í nokkur skipti […]

Lag mánaðarins

By Hermann | 31. janúar 2020

Lag janúar mánaðar er Álfar – höfundur Magnús Þór Sigmundsson

Kakófundur foreldrafélagsins í kvöld!!!

By Hermann | 16. janúar 2020

Kakófundinum sem frestað var sl. þriðjudag v. veðurs verður haldinn í kvöld kl 20:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla en erindið er opið öllum. Kristín Tómasdóttir, rithöfundur heldur fyrirlesturinn „sterkari sjálfsmynd“ þar sem hún fer yfir það hvernig við sem foreldrar getum haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd barnanna okkar. Kristín mun taka fyrir hugtakið sjálfsmynd, hvað það […]

Kakófundi frestað

By Hermann | 14. janúar 2020

Þar sem veðurspá dagsins lítur ekki vel út hefur  stjórn foreldrafélags Sunnulækjarskóla ákveðið að fresta fyrirhuguðum kakófundi sem átti að fara fram í kvöld. Kakófundurinn verður því haldinn nk. fimmtudagskvöld kl 20:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Vonandi sjáum við sem flesta þá.  Linkur á facebook event fundarins er:  https://facebook.com/events/s/kakofundur-sterkari-sjalfsmynd/588115311988352/?ti=ia