Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin fór fram á Stokkseyri í gær. Þar mættu fulltrúar Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Grunnskólans í Hveragerði, Grunnskólans í Þorlákshöfn og Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri. Anna Margrét Guðmundsdóttir í Sunnulækjarskóla bar sigur úr bítum í annars mjög jafnri og góðri keppni. Allir keppendur skólans stóðu sig með sóma.
Heilsa og næring
Valhópurinn í Heilsu og næringu fékk kynningu hjá Unu á Jógaloftinu á Selfossi. Þar fengu þau fengu að kynnast í Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan. Heimsóknin tókst afar vel og nemendurnir heilluðu jógakennarann með framkomu sinni og fengu að vita að frá þeim stafaði mikil jákvæð orka og að þau væru bæði sérstaklega prúð og áhugasöm. Við í […]
Úrslit í undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina hjá 7. bekk.
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 7. bekk æft stíft fyrir Stóru upplestrarkeppnina. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því á Degi íslenskrar tungu í nóvember sl. Nemendur og kennarar hafa staðið sig einstaklega vel og lagt mikinn metnað í undirbúninginn eins og sýndi sig í dag. Þau sem keppa fyrir hönd skólans á lokakeppninni 12. mars […]
Að læra um flatarmál og ummál
Nemendur í 7. bekk voru að læra um flatarmál og ummál í vikunni. Og hvað er betra, þegar læra á eitthvað nýtt en að fara á stúfana og kynna sér flatarmál og ummál hlutanna í umhverfi sínu og leysa fjölbreyttan vanda sem upp kann að koma við slíka vinnu. Nemendurnir fóru því um skólann og […]
Frá Fischersetri
Fréttatilkyning frá Fischersetri