Þythokkí í Sunnulækjarskóla

Foreldrafélag Sunnulækjarskóla færði skólanum glænýtt þythokkíborð að gjöf nú fyrir skemmstu. Í morgun var borðið svo tekið í notkun og kom það í hlut 5. RG að vígja borðið.

Nemendur skemmtu sér hið besta í þythokkíinu og senda foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir svo frábæra gjöf.