Útinám og leikni heimsækir HP kökugerð

Húsnæðið lætur ekki mikið yfir sér en ilmurinn úr HP kökugerð var góður þegar 6. og 7. bekkur í útinámi og leikni mættu til að kynna sér fyrirtækið og starfsemina sem þar er.  Grímur Arnarson og Andrea Ýr dóttir hans  leiddu okkur í gegnum starfsemina og sögu fyrirtækisins. Síðan var boðið upp á kanilsnúðar, kleinur og kókómjólk sem féll mjög vel í kramið. Við þökkum HP kökugerð kærlega fyrir góðar móttökur.

20151015_084612 20151012_104932