Útskrift 10. bekkjar

Ágætu foreldrar 

Útskrift 10. bekkja verður fimmtudaginn 5. júní  kl. 17:00 í íþróttasal skólans.  Þetta eru merk tímamót fyrir börnin, ykkur foreldrana og skólann sem sjálfsagt er að halda hátíðleg.

Athöfnin verður með hátíðarblæ og er því lögð áhersla á snyrtilegan klæðnað. Að lokinni brautskráningu verða veitingar í Fjallasal skólans.  Allir eru velkomnir með börnunum á skólaslitin.

Sú hefð hefur skapast í Sunnulækjarskóla, að foreldrar komi með kaffiveitingar en skólinn bjóði uppá kaffi og gos. Tekið verður á móti kaffiveitingum milli kl. 13:00-15:00 þennan sama dag við eldhús skólans.

Ljósmyndari frá Filmverk á Selfossi verður á staðnum og mun hann taka myndir af útskriftarhópnum.  Foreldrar geta haft samband við Filmverk um kaup á myndum.

Generalprufa vegna útskriftar verður  miðvikudaginn 4. júní kl 10:00.  Mikilvægt er að nemendur mæti stundvíslega.

Lokaskilafrestur námsbóka er einnig þennan dag.

Með bestu kveðju,

Stjórnendur Sunnulækjarskóla