Útskrift 2016

Útskrift 10. bekkja 2016

Útskrift 10. bekkja verður miðvikudaginn 8. júní kl. 15:00 í íþróttasal skólans.  Þetta eru merk tímamót fyrir börnin, ykkur foreldrana og skólann sem sjálfsagt er að halda hátíðleg.

Athöfnin verður með hátíðarblæ og er því lögð áhersla á snyrtilegan klæðnað. Að lokinni brautskráningu verða veitingar í Fjallasal skólans. Allir eru velkomnir með börnunum á útskriftina.

Sú hefð hefur skapast í Sunnulækjarskóla, að foreldrar komi með kaffiveitingar en skólinn bjóði uppá kaffi og gos. Tekið verður á móti kaffiveitingum milli kl. 13:00-15:00 þennan sama dag við eldhús skólans.

Ljósmyndari frá Filmverk á Selfossi verður á staðnum og mun hann taka myndir af útskriftarhópnum. Foreldrar geta haft samband við Filmverk um kaup á myndum.