6. MSG fór í vettvangsferð í gær í tengslum við námsefnið Líkríkið í fersku vatni.
Nemendur hjóluðu að andatjörninni á Gesthúsasvæðinu vopnaðir háfum og krukkum.
Afraksturinn varð fullar krukkur af vatnsköttum, vatnabobbum, brunnklukkum og 2 hornsíli sem verða rannsökuð frekar næstu daga.