Í gær fóru nemendur 10. bekkjar Sunnulækjarskóla út að tína rusl í bænum.
Þeir tíndu rusl meðfram nokkrum götum á Selfossi og af nógu var að taka. Framtakið er hluti af fjáröflun fyrir skólaferðalagið sem foreldratenglar í 10. bekk skipuleggja. Árborg greiðir nemendum fyrir verkið og rennur peningurinn í útskriftarferð hópsins í vor.
.