8. nóvember – dagur gegn einelti

Í dag er 8. nóvember dagur sem er helgaður baráttu gegn einelti.  Í Sunnulækjarskóla hófum við daginn með vinasöngstund.  Þá sækja vinir í eldri bekkjum vini sína í yngri bekkjum og fara með þeim  fram í Fjallasal.  Þegar þangað er komið setjast allir saman í tröllatröppurnar og syngja saman nokkur lög.

Í dag fjölluðu textarninr allir um gildi vináttunnar.  Í lokin lék svo hópur flautuleikara úr 4. bekk fyrir okkur eitt lag.

Síðar í dag eða næstu daga munu kennarar taka eineltisyfirlýsingu Sunnulækjarskóla til umfjöllunar í öllum bekkjum.

Þar segir meðal annars:

Nemendur og starfsmenn í Sunnulækjarskóla eru sammála

um að einelti megi ekki eiga sér stað í okkar hópi.

Við erum sammála um að komi það fyrir munum við gera allt

sem í okkar valdi stendur til að stöðva það strax og koma í

veg fyrir að það geti endurtekið sig.

vinir02 vinir03 vinir01