Foreldrafélag Sunnulækjarskóla gaf 1.bekkingum að gjöf nafnamerkt endurskinsvesti skv. hefð sl. ára.
Elís Kjartansson frá Lögreglunni kom og sagði nokkur vel valin orð við hópinn og afhenti nemendum vestin að gjöf fyrir hönd Foreldrafélagsins.
Hefðin er orðin fastur liður í starfsemi foreldrafélagsins og á alltaf vel við enda mjög mikilvægt að okkar dýrmætasti hópur sjáist vel í umferðinni á dimmustu mánuðunum sem framundan eru.
Nemendur voru að vonum ánægðir með gjöfina og brostu sínu breiðasta fyrir ljósmyndara Foreldrafélagsins.
Á myndinni/myndunum eru ásamt nemendum í 1.bekk Arnar Páll og Dagný f.h. Foreldrafélagsins ásamt Elís Kjartanssyni frá Lögreglunni.