Stóra upplestrarkeppnin fór fram á Stokkseyri í gær. Þar mættu fulltrúar Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Grunnskólans í Hveragerði, Grunnskólans í Þorlákshöfn og Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Anna Margrét Guðmundsdóttir í Sunnulækjarskóla bar sigur úr bítum í annars mjög jafnri og góðri keppni.
Allir keppendur skólans stóðu sig með sóma.