Föstudaginn 10. febrúar fór 5. bekkur í Sunnulækjarskóla í heimsókn á Ljósheima.
Ferðin gekk framúrskarandi vel. Nemendur voru til fyrirmyndar, sungu fyrir gamla fólkið og settust svo hjá því, kynntu sig og spjölluðu.
Mátti vart á milli sjá hvor kynslóðin hafði meira gaman af.