Á vordögum fór bókaútgáfan IÐNÚ af stað með lestrarátak sem var kallað „Ævintýralestur“. Þar var áhersla lögð á lestur á bókunum „Óvættaför“ og líka öðrum ævintýrabókum.
Nemendur Sunnulækjarskóla voru nokkuð duglegir að taka þátt í átakinu.
Einn nemandi varð hlutskarpastur í þessu átaki og var það Guðmundur Alexander Jónasson í 6. AGS. Hann fékk viðurkenningarskjal og 6 bækur um Óvættaför í verðlaun.