Vordagar, skólaslit og útskrift

Dagarnir 4. og 5. júní eru vordagar í Sunnulækjarskóla.

Fyrri dagurinn er skipulagður sem sérstakur bekkja- eða árgangadagur þar sem kennarar skipuleggja göngu- eða hjólaferðir og annað álíka.

Seinni daginn, 5. júní, verður “Litríki vordagurinn”. Sá dagur einkennist af samvinnu alls skólasamfélagsins, nemenda, starfsmanna og foreldra. Foreldrum er sérstaklega boðið að taka þátt í deginum og mæta með börnum sínum.

Megin atriði þessa dags er 700 manna skrúðganga um nágrenni skólans sem leggur af stað frá skólanum kl. 8:50 um morguninn og síðan leikir og skemmtun eftir frímínútur og endað með grilluðum pylsum í hádeginu.

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar
Skólaslit verða miðvikudaginn 6. júní. Athöfnin verður í þrennu lagi.

kl. 09:00 skólaslit 1. – 4. bekkur
kl. 11:00 skólaslit 5. – 9. bekkur
kl. 15:00 útskrift 10. bekkur

Við hvetjum foreldra til að koma með börnum sínum á skólaslitin og útskriftina.