Miðvikudaginn 12. október er foreldradagur í Sunnulækjarskóla. Þann dag mæta foreldrar með börnum sínum í viðtal.
Foreldradagur að hausti er tileinkaður líðan nemenda og sjálfsmati gagnvart námi og félagslegri stöðu.
Efni viðtalanna:
- Líðan nemandans og félagsleg staða, farið yfir það helsta sem kemur fram á sjálfsmati nemandans.
- Áhugamál og tómstundir, er hægt að tengja það við námið, félagslega stöðu.
- Námsleg staða, hvernig gengur að tileinka sér markmiðin í öllum námsgreinum, lestrarstaða, heimanám, næstu markmið sem einblínt verður á.
- Styrkleikar nemandans, hverjir eru þeir og hvernig nýtast þeir í náminu.
Foreldrar þurfa að skrá sig í viðtalstíma vegna sinna barna hjá viðkomandi umsjónarkennara.
Til að skrá sig þarf að fara inn á Mentor og velja lausar tímasetningar. Opnað er fyrir skráningu í dag 3. október.
Leiðbeiningar um skráningu í foreldraviðtöl má finna á: https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM