Mánudaginn 1. október kom foreldrafélagið enn færandi gjafir til okkar í Sunnulækjarskóla.
Að þessu sinnu komu tveir fulltrúar foreldrafélagsins í fylgd lögreglu til að færa nemendum í 1. bekk endurskinsvesti að gjöf. Lögregluþjónarnir spjölluðu við börnin um mikilvægi þess að allir sjáist vel nú þegar dimma fer og vetur gengur í garð.
Við kunnum foreldrafélaginu og lögreglunni bestu þakkir fyrir þeirra starf og stuðninginn við skólann og börnin sem hér stunda nám.