Heimsókn frá Gunna og Felix

Félagarnir Gunnar Helgason og Felix Bergson mættu í heimsókn í morgun með listviðburðinn Ein stór fjölskylda fyrir 5.-7. bekki skólans.

Gunnar hélt fyrirlestur um hvernig á að skrifa geggjaðar sögur og inn í þann fyrirlestur blandaði Felix pælingum um fjölskyldur og mismunandi fjölskylduform. Þeir svöruðu svo spurningum krakkanna. Að fyrirlestrum loknum skemmtu þeir krökkunum með söng og glensi.

Viðburðurinn er hluti af verkefninu List fyrir alla sem ætlað er að miðla listviðburðum um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum.