Litlu jólin samkvæmt dagskrá

Skólinn er opinn og litlu jólin verða samkvæmt dagskrá 20. desember.

Skilaboð frá GT bílum varðandi skólaakstur:
Lokað er á Votmúlavegi og í Tjarnabyggð. Greiðfært er á stofnbrautum innanbæjar.

Leiðbeiningar til forsjáraðila þegar óveður raskar skólastarfi 

Nú er gul veðurviðvörun sem getur haft nokkur eða staðbundin áhrif og valdið töfum, slysum eða tjóni ef aðgát er ekki höfð. Allir eru því hvattir til að fara varlega.  

Þegar óveður raskar skólastarfi að morgni dags er ábyrgð á höndum forsjáraðila. Þeir þurfa að fylgjast með veðri og ákveða hvort barnið gangi eitt í skóla eða ekki. Leitast er við að hafa skóla opna og taka á móti nemendum. Þá er þeim eindregnu tilmælum beint til forsjáraðila að fylgja yngri börnum í skóla og yfirgefa þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks.

Meti forsjáraðilar það svo að best sé að halda barni heima vegna veðurs eða færðar skulu þeir tilkynna skólanum um forföll barnsins og litið er á þau forföll sem eðileg forföll af hálfu skólans.