Í tilefni af Degi íslenskrar tungu fóru nemendur 7. bekkja í heimsókn á Hulduheima og Ljósheima og lásu fyrir börnin og eldri borgara. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og var skemmtileg. Þetta var góð æfing fyrir krakkana í 7. bekk sem eru einmitt að hefja undirbúning og æfingar fyrir Stóru upplestrarkeppnina.