Starfsdagur 18. nóvember og foreldradagur 20. nóvember

Kæru foreldrar og forráðamenn 

Mánudagurinn 18. nóvember, er starfsdagur í Sunnulækjarskóla.  Þennan dag munu kennarar nota til að ganga frá námsmati haustannar. Nemendur mæta því ekki í skólann þann dag. Skólavist er opin en skrá þarf börn sérstaklega þennan dag. 

Námsmatsblöð haustannar verða send heim með nemendum þriðjudaginn 19. nóvember. 

Foreldrar og nemendur mæta í viðtöl miðvikudaginn 20. nóvember. Fundarboð með nákvæmri tímasetningu viðtala verður sent heim föstudaginn 15. nóvember. Nemendur mæta með foreldrum sínum í viðtölin en eru ekki í skólanum þann dag að öðru leyti. Skólavist er opin en skrá þarf börn sérstaklega þennan dag. 

Nemendafélagið ætlar að selja kaffi, kakó og vöfflur til styrktar félaginu.  Þar sem ekki er unnt að taka við greiðslukortum biðjum við foreldra að hafa með sér lítilræði af peningum til að kaupa sér hressingu af nemendum.