Ólympíuhlaupið

Ólympíuhlaupið í Sunnulækjarskóla

Miðvikudaginn 15. september hlupu nemendur Sunnulækjarskóla Ólympíuhlaupið (áður Norræna Skólahlaupið). Hringurinn sem var farinn er 2,5 km og gátu nemendur valið um 1-4 hringi. Nemendur réðu sinni vegalengd og hraða, fyrst og fremst var lögð áhersla á hreyfingu og að allir tækju þátt. Það var góð stemning í hlaupinu, gott veður og mikill metnaður hjá nemendum. Það voru 104 nemendur í skólanum sem að hlupu 10 km sem eru fleiri en áður. Alls hlupu nemendur í Sunnulækjarskóla 2708 km, virkilega vel af sér vikið.