Starfsdagur 3. október

Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 3. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 2. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir:

1. – 4. bekkur: kennslu lýkur samkvæmt stundaskrá, engin breyting.
5. – 7. bekkur: kennslu lýkur kl 13:00
8. – 10. bekkur: kennslu lýkur kl 12:35 (matartími til 13:05)

Hægt er að sjá yfirlit yfir alla starfsdaga skólaárið 2014 -2015 á skóladagatali á heimasíðu skólans, www.sunnulaekjarskoli.is.

Kveðja,
Birgir Edwald,
skólastjóri