Setrinu færður iPad að gjöf
Setrinu í Sunnulækjarskóla barst höfðingleg gjöf í vikunni. Gjöfin sem er iPad er frá fyrirtæki á Selfossi og erum við afar þakklát fyrir hana. Ipadinn mun nýtast mjög vel í skólastarfi Setursins sem námstæki og til tjáskiptaþjálfunar. Nokkrir nemendur eru þegar farnir að koma með eigin iPad og spjaldtölvur í skólann. Nú á Setrið sinn eigin iPad gefur það okkur möguleika á að […]
Vettvangsferð
6. MSG fór í vettvangsferð í gær í tengslum við námsefnið Líkríkið í fersku vatni. Nemendur hjóluðu að andatjörninni á Gesthúsasvæðinu vopnaðir háfum og krukkum. Afraksturinn varð fullar krukkur af vatnsköttum, vatnabobbum, brunnklukkum og 2 hornsíli sem verða rannsökuð frekar næstu daga.
Námsefniskynningar
Kynningar á skólastarfinu fyrir foreldra/forráðamenn nemenda fara fram sem hér segir; 1. bekkur þriðjudaginn 4.sept. kl. 17:30 2. bekkur miðvikudaginn 12. sept. kl.17:00 3. bekkur mánudaginn 10.sept. kl.17:30 4. bekkur miðvikudaginn 12.sept. kl.18:00 5. bekkur miðvikudaginn 12. sept. kl.16:30 6. bekkur fimmtudaginn 6 sept. kl. 17:00 7. bekkur þriðjudaginn 11. sept. kl. 17:00 8. bekkur þriðjudaginn 11. […]
Sultugerð í Sunnulækjarskóla
Mjög fjölbreyttur trjágróður er á skólalóð Sunnulækjarskóla. Þar á meðal eru rifsberjarunnar sem voru þakkin rifsberjum þegar skólastarf hófst. Nemendur í 8. bekk í heimilisfræði ákváðu að nýta það og tíndu berin af rifsberjarunnunum og gerðu sér svo ljúfengt rifsberjahlaup. Hér má sjá nokkrar myndir af sultugerðinni.
Innkaupalistar
1. bekkur 2 bekkjar 3.bekkur 4.bekkur 5.bekkur 6.bekkur 7. bekkur 8 – 10 bekkur