Fundur um endurskoðun skólastefnu Árborgar
Fimmtudaginn 2. febrúar var haldinn sameiginlegur fundur allra skóla- og foreldraráða grunn- og leikskóla í sveitarfélaginu Árborg. Fundurinn, sem var haldinn í Sunnulækjarskóla, var samráðs og hugmyndavinnufundur. Honum var ætlað að safna saman hugmyndum, gildum og markmiðum sem stefna bera að og mikilvægt er að hafa í huga við endurskoðun núverandi skólastefnu sveitarfélagsins.
Kynning á FSu og ML
Þriðjudaginn 31. janúar var haldinn kynningarfundur í Sunnulækjarskóla á tveimur framhaldsskólum, Fjölbrautarskóla Suðurlands og Menntaskólanum á Laugarvatni. Það voru námsráðgjafar skólanna sem komu ásamt fulltrúum nemenda og kynntu skóla sína fyrir nemendum 10. bekkjar Sunnulækjarskóla og foreldrum þeirra. Fundurinn var vel sóttur og greinilegt að skemmtilegur tími er í vændum hjá unglingunum okkar.
Lestarhestar í 3.bekk
Nemendur í 3. bekk hafa verið afar duglegir að lesa um þessar mundir, en þeir taka nú þátt í sérstöku lestarátaki sem stendur yfir í 6 vikur á miðönn. Markmið þess er:-að þjálfa áheyrilegan lestur-að efla lesskilning og lestarleikni-að auka lestarlöngun nemandans-að bæta skrift og setningamyndun-að kynna nemendum málfræði í texta
Þorrinn boðinn velkominn
Í morgun var söngstund í Fjallasal í tilefni bóndadags og upphafs Þorra. Allir nemendur skólans hófu skóladaginn með því að setjast í Þingbrekkuna og syngja saman nokkur lög. Nemendur úr 5. bekk sáu um forsöng ásamt hljóðfæraleikurum og söngfuglum úr starfsliði skólans.
Val hjá 8.-10.bekk
Í næstu viku fer nýtt val á stað. Nemendur skoða nýtt val og ræða það við umsj.kennara.