Bíódagar
Síðustu daga hafa nemendur í 9. og 10. bekk unnið að verkefni í Kviku sem heitir Bíódagar. Verkefnið snýst um að gera stuttmynd og er mikil vinna sem nemendur leggja á sig í handritagerð, finna búninga, taka upp, klippa og vinna hljóð. Þetta er í sjöunda skipti sem Bíódagar eru haldnir og hefur verkefnið stækkað […]
Bíódagar Sunnulækjarskóla 2024
Síðastliðna viku voru bíódagar í 9 og 10 bekk. Nemendur eru búnir að vinna hörðum höndum í að búa til stuttmyndir sem verða sýndar í Bíóhúsinu 24 maí. Þetta er í 7. sinn sem bíódagar eru haldnir í Sunnulækjarskóla og nemendurnir eru búnir að standa sig mjög vel og eiga stórt hrós skilið. […]
Samstarfsverkefnið FSunnó
Í vetur hafa nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands og Sunnulækjarskóla unnið samstarfsverkefni sem kallast FSunnó. Hekla Þöll Stefánsdóttir kennari við Fsu hefur leitt verkefnið í samstarfi við kennara 10. bekkjar í Sunnulækjarskóla. Á heimasíðu Fsu er fjallað nánar um verkefnið sem hefur gengið mjög vel búið til spennandi brú á milli skólastiganna tveggja. https://www.fsu.is/is/frettir/samvinna-milli-skolastiga-i-raungreinum