Fimmtudaginn, 10. mars fóru nemendur í 7. RG í vettvangsferð ásamt Ragnheiði umsjónarkennara og Hauki kennaranema í Jarðskjálftamiðstöð Háskóla Íslands.
Elínborg Gunnarsdóttir tók vel á móti hópnum og fengu þau fræðslu um starfsemi stofnunarinnar og hvernig megi bregðast við jarðskjálftum á öruggan hátt. Nemendur fengu að búa til gervijarðskjálfta sem var sýndur á skjálftamæli.
Jafnframt var verkleg æfing í viðbrögðum við jarðskjálftum með tímamælingu.