Víkingaöld í Sunnulækjarskóla

Nemendur í 8. bekk eru að hefja lestur á Íslendingasögum og fengu af því tilefni kynningu á klæðnaði, skarti, vopnum og siðum víkingaaldar frá meðlimum í víkingafélaginu Rimmugýg. Nú hafa nemendur fundið hvernig er að bera sverð og skjöld og vita hversu ótrúlega þung hringabrynja er. Þau hafa fengið að skoða hefðbundinn klæðnað víkinganna og skilja nú hvað vaðmál er. Hetjurnar úr Íslendingasögunum munu því birtast nemendum ljóslifandi við lestur sagnanna. Við þökkum Rimmugýg innilega fyrir að glæða þennan forna arf okkar lífi.