Skákkennsla grunnskólakrakka

Vegna forfalla leiðbeinanda byrjar skáknámskeiðið ekki laugardaginn 29. janúar eins og til stóð. Ný frétt fer í loftið þegar dagsetning verður staðfest. 

Fyrri frétt: Námsskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákfélag Selfoss og nágrennis. Oddgeir Ágúst Ottesen og Ingimundur Sigurmundsson hjá Skákfélagi Selfoss og nágrennis sjá um kennsluna. Þetta verða 10 skipti eða einu sinni í viku og þá á laugardögum frá 11:00 – 12:30 og kostar allt námsskeiðið 5000 kr.
Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast hringið í síma 894-1275 eða sendið tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com
Fischersetrið á Selfossi.