Síðastliðna viku voru bíódagar í 9 og 10 bekk. Nemendur eru búnir að vinna hörðum höndum í að búa til stuttmyndir sem verða sýndar í Bíóhúsinu 24 maí. Þetta er í 7. sinn sem bíódagar eru haldnir í Sunnulækjarskóla og nemendurnir eru búnir að standa sig mjög vel og eiga stórt hrós skilið. Við höfum fengið flotta gesti í skólann sem hafa verið að fræða bekkina um kvikmyndagerð og kveikja áhuga þeirra.