Fréttasafn
Fréttir frá Sunnulækjarskóla
Leiklistarhópur 7. bekkjar
Eftir áramót fórum við nýjar leiðir og buðum upp á val í 7. bekk. Nemendur gátu valið á milli Hreyfingu og hreystis eða Leiklistar en það voru þau fög sem fengu mesta kosningu í áhugasviðskönnun sem gerð var í upphafi. […]
Vetrarfrí 22. og 23. febrúar
Mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. febrúar er vetrarfrí í Sunnulækjarskóla og því verður skólinn lokaður þá daga. Frístund verður einnig lokað þessa daga vegna starfsdags þar. Njótið vetrarleyfisins.
Skákkennsla í Fischersetri
Sunnudaginn 14. feb. nk. kl. 11:00 hefst skáknámsskeið fyrir grunnskólabörn í Fischersetri. Námsskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg, Skákskóla Íslands og Skákfélag Selfoss og nágrennis. Helgi Ólafsson, stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands hefur yfirumsjón með kennslunni. Þetta verða […]
Starfsdagur og foreldraviðtöl 4. og 5. febrúar
Fimmtudagurinn 4. febrúar og föstudagurinn 5. febrúar eru starfsdagur og foreldradagur í Sunnulækjarskóla samkvæmt skóladagatali. Foreldraviðtölin eru tileinkuð námslegri stöðu, sjálfsmati gagnvart námi og líðan nemenda. Öll kennsla fellur niður og vegna smitvarna munu viðtölin fara fram rafrænt í gegnum […]
Skólastarf í Sunnulækjarskóla á nýju ári
Þann 21. desember s.l. gaf heilbrigðisráðherra út nýja reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími þeirrar reglugerðar er frá og með 1. janúar 2021 og til og með 28. febrúar 2021. Í 4. grein þeirrar reglugerðar er fjallað um […]
Jólafrí í Sunnulækjarskóla
Í dag héldum við litlu-jólin í Sunnulækjarskóla með stofujólum í öllum námshópum frá 1. – 10. bekk. Jólaandinn var ósvikinn og nutu allir stundarinnar jafnt nemendur sem starfsmenn. Okkur hafði verið sagt að Grýla væri búin að leggja blátt bann […]
Sameiginleg verkefni nemenda í smiðjum
Í þeim takmörkunum sem skólunum var sett í þriðju bylgju covid var ekki leyft að blanda árgöngum innan skólanna. Það þýddi að hefðbundið starf í smiðjum (list-og verkgreinar) varð að breytast. Þess í stað þurftu smiðjukennarar að vera lausnamiðaðir og vinna […]
Skólaakstur á litlu jól
Föstudaginn 18. desember verður skólaakstur með efirfarandi hætti: Nemendur í 1. – 4. bekk og Setri Bíll á fyrsta bæ kl. 8:00, stofujól 8:30 – 9:30, heimferð frá skóla 9:45 Nemendur í 5. – 7. bekk Bíll á fyrsta bæ […]
Stofujól og jólafrí
Kæru foreldrar og forráðamenn Senn líður að jólum og nú eru aðeins nokkrir dagar til Litlu jóla. Þrátt fyrir ýmsar hömlur er orðið mjög jólalegt hér í Sunnulækjarskóla. Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða með nokkuð öðru sniði í ár […]
Fréttablað – nóvember
Út er komið skólablað frá krökkunum í Kviku með jólaívafi: 10. bekkur í Kviku vann fyrir samkomutakmarkanir þetta skólablað í fjölmiðlasmiðju. Áherslan var á jólin og aðventuna. Í meðfylgjandi skjali má lesa brakandi fréttir frá þeim. Fréttablað
