Fréttasafn

Fréttir frá Sunnulækjarskóla

Fjallabrauð

26. október 2015

Stelpurnar í 6. bekk í útinámi og leikni bökuðu fjallabrauð á pönnu.  Í útieldun reynist stundum erfitt að tempra hitann og gengur lítið að hækka / lækka hann en þetta er það sem fólk bjó við. Uppskrift af fjallabrauði er […]

Popp og bíó

26. október 2015

Strákarnir í 7. bekk í útinámi og leikni gerðu stuttan „trailer“ á Ipadinn í appinu IMovie og poppuðu úti. Hver veit nema þarna séu kvikmyndagerðamenn og leikarar framtíðarinnar !

Útinám og leikni heimsækir HP kökugerð

26. október 2015

Húsnæðið lætur ekki mikið yfir sér en ilmurinn úr HP kökugerð var góður þegar 6. og 7. bekkur í útinámi og leikni mættu til að kynna sér fyrirtækið og starfsemina sem þar er.  Grímur Arnarson og Andrea Ýr dóttir hans […]

Útinám og leikni heimsækir Bílverk BÁ

18. október 2015

Strákarnir í 7. bekk í Útinám og leikni heimsóttu Bílverk BÁ  og kynntu sér starfsemi og störf þeirra sem vinna þar. Þar var margt áhugavert að sjá eins myndirnar segja til um. Við þökkum Bílverk BÁ  kærlega fyrir góðar móttökur.

Í dag matreiddu strákarnir sushi

13. október 2015

… og gleðin skein úr hverju andliti

Pappírsbátarigningin

9. október 2015

Það er gaman að leika sér í læknum á skólalóðinni á góðum rigningardögum.  4. bekkur í útinámi og leikni gerði sér pappírsbáta og nýttu lækinn sér til skemmtunar. Í læknum eru sker (grjót), grynningar (smásteinar) sem bátarnir þurftu að sigla framhjá. Drengirnir skemmtu […]

Starfalækur heimsækir Ökuskólann

9. október 2015

Síðast liðinn fimmtudag heimsóttu nemendur í Starfalæk Ökuskólann þar sem Þráinn Elíasson tók á móti þeim og fór yfir helstu atriði varðandi ökunám, umferð og umferðaröryggi. Heimsóknin var bæði fróðleg og áhugaverð. Við þökkum honum kærlega fyrir góðar móttökur.

Guðnabakarí heimsótt

9. október 2015

Nemendur í Starfalæk heimsóttu Guðnabakarí á dögunum. Óskar Guðnasson, bakari tók á móti nemendum og fræddi þau um starfið, starfsemina og námið sem liggur að bakaraiðn. Við þökkum Óskari og starfsfólki Guðnabakarís kærlega fyrir góðar móttökur.

Starfalækur heimsækir Brunavarnir Árnessýslu

9. október 2015

Í síðustu viku heimsóttu nemendur í Starfalæk Brunavarnir Árnessýslu þar sem Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri tók á móti þeim. Kristján ræddi við nemendur m.a. um starfsemi stofnunarinnar, mannauðinn, starfið og búnaðinn.  Heimsóknin var mjög áhugaverð og voru nemendur ánægðir með heimsóknina sem lauk með heimkeyrslu á mannskapsbíl […]

Haustþing KS, starfsdagur

5. október 2015

Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 2. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 1. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir: 1. – 4. […]

Heimsókn í Lifandi hús

28. september 2015

Krakkarnir í Boltalausum íþróttum fóru í vikunni í heimsókn í Lifandi hús. Þar tók Helga á móti okkur og fengu krakkarnir kynningartíma í Foam flex. Foam flex er sjálfnuddandi aðferð þar sem notast er við rúllur og nuddbolta. Unnið er […]

Lífríkið og skógurinn

23. september 2015

Það er alltaf gaman að fara út í Vinaskóg (fyrir framan Sunnulækjarskóla) – þar er uppspretta könnunar og leikja.  Nemendur í 4. bekk í útinámi og leikni nutu þess að tálga og kanna lífríkið í skóginum.