Stærðfræðiþrautakeppni í 8. og 9. bekk á alþjóðlega stærðfræðideginum 14. mars sl.

Fimmtudaginn 14.mars var alþjóðlegi stærðfræðidagurinn og kemur það til vegna þess að hann tengist tölunni Pí sem er 3.14. Í tilefni dagsins tóku nemendur í 8. og 9. bekk þátt í stærðfræðiþrautakeppni þar sem reyndi á allskyns hæfni á sviði stærðfræðinnar. Nemendur voru í 3-5 manna hópum og sýndu mikla virkni og gleði í keppninni. Einn hópur í hvorum árgangi fékk vegleg verðlaun fyrir flest stig í keppninni og hver þátttakandi innan hópsins fékk vasareikni að gjöf frá skólanum sem mun án efa nýtast þeim vel í leik og starfi næstu árin. Það er alltaf gaman að hafa smá uppbrot í skólastarfinu og sérstaklega þegar vel gengur og allir hafa gaman af.

Meðfylgjandi eru myndir af sigurvegurum í 8. og 9.bekk

9.bekkur frá vinstri: Elvar Atli, Hlynur Freyr, Elva Lillian, Freydís Erla og Eva Lind

8.bekkur efri röð frá vinstri: Dagbjört Oktavía, Svanhildur Edda og Sunna Mjöll. Neðri röð frá vinstri: Brynja og Emilía Rún