Stjórnmálaverkefni í Kviku

Síðustu vikur hefur 10. bekkur unnið hörðum höndum að stjórnmálaverkefni í Kviku þar sem þau hafa stofnað stjórnmálaflokka og útbúið stefnuskrár. Í dag voru flokkarnir með kynningar og í kjölfarið voru kosningar þar sem nemendur ásamt öllu starfsfólki skólans gátu kosið.

Verkefnið miðar að því að þjálfa nemendur í gagnrýnni hugsun, sjálfstæði og samvinnu og að taka þátt í að byggja upp það lýðræðissamfélag sem Sunnulækjarskóli er. Fulltrúar bæjarstjórnar hafa komið í heimsókn til að spjalla við flokkana og gefa innsýn inn í heim stjórnmálanna. Sigurflokkurinn mun í næstu viku funda með stjórnendum skólans til að finna leiðir til að koma sínum málefnum í framkvæmd.