Endurskoðun skólastefnu Árborgar
Þriðjudaginn 17. apríl var haldinn sameiginlegur fundur stjórna allra nemendafélaga í grunnskólum sveitarfélagsins. Efni fundarins var endurskoðun skólastefnu sveitarfélagsins. 24 nemendur úr öllum skólum sveitafélagsins mættu til fundarins sem var haldinn í Sunnulækjarskóla. Fundurinn var tvískiptur. Fyrst var unnið í hópum sem leituðu svara við spurningunum; hvað gerir skóla góðan? og hvaða áherslur viljum við sjá á næstu […]
Nýnemar í heimsókn
Í dag komu væntanlegir nýnemar Sunnulækjarskóla í heimsókn. Tekið var manntal og allir boðnir velkomnir. Síðan var gengið um skólann og nýnemarnir kynntu sér aðstæður á nýjum vinnustað. Margt var skemmtilegt og margt forvitnilegt og um margt var spurt. Að endingu var þó niðurstaðan að það væri gaman í skólanum og að þar væri skemmtilegt […]
Páskaeggjabingó í Sunnulækjarskóla
Fimmtudagskvöldið 29. mars héldu tenglar í 10. bekk páskaeggjabingó. Bingóið sem er liður í fjáröflun í ferðasjóð 10. bekkjar tókst einstaklega vel. Húsfyllir var og setið í öllum tröppum, á kollum og stólum. Við þökkum foreldrum fyrir einstaklega góða þátttöku.
Starfs- eða námskynning 10.b.
19.- 22. mars og 26. – 27. mars 2012Valblað nemenda
Foreldrafélag Sunnulækjarskóla stóð fyrir fræðslufundi um netnotkun
Foreldrafélag Sunnulækjarskóla stóð fyrir fræðslufundi um netnotkun undir yfirskriftinni: ÓGNANIR OG TÆKIFÆRI INTERNETSINS HJÁ BÖRNUM OG UNGLINGUM Um 60 manns mættu á fundinn sem haldinn var í Fjallasal Sunnulækjarskóla s.l. þriðjudagskvöld. Fyrirlesari var Hafþór Birgisson, tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar. Hafþór hefur farið víða um land og haldið marga fyrirlestra um efnið. Í fyrirlestrinum fór Hafþór yfir […]