Kertasund
Kertasund hófst í dag og verður út alla vikuna í skólasundi. Þetta er skemmtileg hefð í jólatíðinni þar sem huggulegheit er í fyrirrúmi.
Stjórnmálaverkefni í Kviku
Síðustu vikur hefur 10. bekkur unnið hörðum höndum að stjórnmálaverkefni í Kviku þar sem þau hafa stofnað stjórnmálaflokka og útbúið stefnuskrár. Í dag voru flokkarnir með kynningar og í kjölfarið voru kosningar þar sem nemendur ásamt öllu starfsfólki skólans gátu kosið. Verkefnið miðar að því að þjálfa nemendur í gagnrýnni hugsun, sjálfstæði og samvinnu og […]
Barátta gegn einelti
Næsta vika verður tileinkuð baráttu gegn einelti. Við munum vinna með góð samskipti og verðum með vinaheimsóknir á milli bekkja. Þriðjudaginn 8. nóvember ætlum við að hafa símalausan dag í öllum skólanum og mælumst til þess að nemendur skilji símana eftir heima. Fimmtudaginn 10. nóvember verður söngstund kl. 8:30
Skólablak
Sunnulækjarskóli tók þátt í skólablakmóti sem að Blaksamband Íslands stóð fyrir í samstarfi við UMFÍ, ÍSÍ og Evrópska Blaksambandið. Markmiðið með verkefninu var að kynna blakíþróttina fyrir krökkum og kennurum og auka sýnileika hennar á landsvísu. Það voru nemendur í 6. bekk sem fóru í Lindexhöllina, lærðu takta af landsliðsmönnum og spiluðu blak. Áhugavert og skemmtilegt verkefni […]
Kennaraþing Suðurlands 30. september
Kæru foreldrar og forráðamenn. Þing Kennarafélags Suðurlands fer fram á Flúðum á morgun fimmtudaginn 29. september frá kl. 14:00 og allan föstudaginn. Af þeim sökum lýkur skólastarfi kl. 13:00 á morgun og engin kennsla fer fram á föstudaginn. Nánari upplýsingar veita stjórnendur. https://sunnulaek.is/skolinn/skoladagatal/