Lífshlaupið
Grunnskólakeppnin, landskeppni í hreyfingu hefst á morgun 5. febrúar og stendur yfir í tvær vikur. Skráð er öll miðlungserfið eða erfið hreyfing sem stunduð er yfir daginn. Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 60 mínútur, fyrir 15 ára og yngri, sem skipta má upp í nokkur skipti […]
Lag mánaðarins
Lag janúar mánaðar er Álfar – höfundur Magnús Þór Sigmundsson
Kakófundur foreldrafélagsins í kvöld!!!
Kakófundinum sem frestað var sl. þriðjudag v. veðurs verður haldinn í kvöld kl 20:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla en erindið er opið öllum. Kristín Tómasdóttir, rithöfundur heldur fyrirlesturinn „sterkari sjálfsmynd“ þar sem hún fer yfir það hvernig við sem foreldrar getum haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd barnanna okkar. Kristín mun taka fyrir hugtakið sjálfsmynd, hvað það […]
Kakófundi frestað
Þar sem veðurspá dagsins lítur ekki vel út hefur stjórn foreldrafélags Sunnulækjarskóla ákveðið að fresta fyrirhuguðum kakófundi sem átti að fara fram í kvöld. Kakófundurinn verður því haldinn nk. fimmtudagskvöld kl 20:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Vonandi sjáum við sem flesta þá. Linkur á facebook event fundarins er: https://facebook.com/events/s/kakofundur-sterkari-sjalfsmynd/588115311988352/?ti=ia
Áríðandi tilkynning – styttur skóladagur í dag 10. janúar
Ágætu foreldrar og forráðamenn Vegna slæms veðurútlits og appelsínugulrar viðvörunar frá kl. 12:00 á Suðurlandi í dag höfum við ákveðið að ljúka skólastarfi heldur fyrr en venja er til. Skólastarfi mun því ljúka kl. 11:00 föstuaginn 10. janúar 2020 Skólaakstur í Tjarnarbyggð og Sandvíkurhrepp mun leggja af stað frá Sunnulækjarskóla kl. 11:00. Með þessum hætti […]