Skákmót fyrir krakka á grunnskólaaldri laugardaginn 23. nóvember
Skákmót fyrir krakka á grunnskólaaldri verður haldið á Hótel Selfossi laugardaginn 23. Nóv. (á morgun). Áætlaður mótstími er frá 10:30-12:30 Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri. Veitt verða verðlaun fyrir þrjá aldursflokka; 16 ára og yngri, 12 ára og yngri, og 9 ára og yngri. Tefldar verða 7 umferðir, umhusunartími er 7 mínútur á skák. […]
Ævar vísindamaður í heimsókn
Ævar Þór kom í Sunnulækjarskóla 12. nóvember sl. og las fyrir nemendur í 4. – 7. bekk upp úr nýrri bók sinni sem var gefin út hjá Forlaginu og heitir ÞINN EIGIN TÖLVULEIKUR. Þetta er sjötta bókin í ,,Þín eigin“-bókaröðinni. Þinn eigin tölvuleikur er æsispennandi ævintýrabók, en lesandinn ræður ferðinni sjálfur með því að fletta fram og til baka. Í bókinni […]
Endurskinsvesti afhent í 1. bekk Sunnulækjarskóla
Foreldrafélag Sunnulækjarskóla afhenti fyrir nokkru, börnum í 1. bekk endurskinsvesti með nöfnum þeirra á. Lögreglumenn frá Lögreglunni á Suðurlandi mættu í skólann þegar nemendur fengu vestin afhend og fóru yfir hversu mikilvægt það er að sjást vel í umferðinni.
Jól í skókassa
Síðustu ár hafa verið góðgerðardagar í byrjun desember í Sunnulækjarskóla. Í þetta sinn verða þeir síðar á skólaárinu og því langaði kennurunum að gera eitthvað annað góðverk með bekknum fyrir jólin. Fyrir nokkru kynntu umsjónarkennarar fyrir 7. bekk verkefnið Jól í skókassa og var ákveðið að bekkirnir þrír myndu taka þátt. Nemendur tóku vel í […]