Góður árangur í skólahreysti
Fimmtudaginn 22. mars keppti Sunnulækjarskóli í Suðurlandsriðli Skólahreysti. Krakkarnir stóðu sig með sóma og höfnuðu í öðru sæti, sem er besti árangur sem Sunnulækjarskóli hefur náð í keppninni til þessa. Í liðinu í ár voru Bjarki Birgisson sem keppti í upphífingum og dýfum. Sólrún María Jóhannsdóttir sem keppti í armbeygjum og hreystigreip, Jónas Grétarsson sem keppti […]
Grunnskólamót í sundi
Sunnulækjarskóli tók þátt í grunnskólamóti í sundi sem fór fram í Ásvallalaug, Hafnafirði þriðjudaginn 13. mars. Farið var í rútu ásamt Vallaskóla. 34 skólar tóku þátt með um 550 keppendur en mótið fer stækkandi ár hvert. Keppt var í tveimur flokkum; miðstigi (5.-7. bekk) þar sem 37 lið tóku þátt og unglingastigi (8-10. bekk) þar […]
Laust starf íþróttakennara
Vegna fæðingarorlofs vantar íþróttakennara til starfa við Sunnulækjarskóla frá 1. apríl til loka skólaárs. Meðal kennslugreina eru íþróttir á yngsta- og miðstigi og dans á yngsta stigi. Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í síma 480-5400 og á vefsíðu skólans: http://www.sunnulaekjarskoli.is Umsóknarfrestur er framlengdur til 18. mars 2018. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og […]
Góður árangur í Stóru upplestrarkeppninni
Nemendur Sunnulækjarskóla hafa staðið sig afar vel í undirbúningi og undankeppnum Stóru upplestrarkeppninnar. Í síðustu viku kepptu nemendur 7. bekkjar um sæti í keppnisliði Sunnulækjarskóla í lokakeppninni sem fram fór í Þorlákshöfn sl. þriðjudag, 13. mars. Í keppnislið skólans völdust Axel Ýmir Grönli, Hera Lind Gunnarsdóttir, Hildur Maja Guðmundsdóttir og Hugrún Tinna Róbertsdóttir. Að lokinni […]
Skóladagur Árborgar, 14. mars 2018
Skóladagur Árborgar, símenntunardagur í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum Árborgar. Næstkomandi miðvikudag 14. mars verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla og því verður engin kennsla þann dag og skólinn lokaður. Sama er að segja um Frístundaheimilið Hóla. Daginn munu allir starfsmenn leik- og grunnskóla og frístundaheimila sveitarfélagsins nýta til símenntunar á Skóladegi Árborgar sem haldinn verður á […]