Team Spark kynning
Í febrúar fengu nemendur í 10. bekk kynningu á verkfræði og Team Spark verkefni Háskóla Íslands. Nemar úr verkfræði, Emma og Jakob kynntu verkefnið en þau eru hluti af rúmlega 30 nemendum sem koma að smíði og hönnun Team Spark bílsins (www.teamspark.is). Nemendurnir koma úr ýmsum greinum svo sem vélaverkfræði, iðnaðarverkfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, viðskiptafræði […]
Plast eða fiskur?
Nokkrir nemendur í 10. bekk í Sunnulækjarskóla tóku að sér að fjalla um plast og notkun á plasti í skólanum. Skoðaður var kostnaður á plastpokum í ruslafötur á kennslusvæðum og áhrif plasts á umhverfið. Nemendur komust að því að notaðir eru plastpokar fyrir tæpar 300.000 kr á ári. Stefna í flokkunarmálum hjá sveitafélaginu Árborg er […]
Vetrarfrí
Við minnum á að 23. og 24. febrúar er vetrarfrí í Sunnulækjarskóla og skólinn lokaður.
Heimsókn í Tækniskólann
Nemendur í 10. bekk heimsóttu Tækniskólann í Reykjavík nýverið. Þar fengu þau að kynnast fjölbreyttum möguleikum sem bjóðast til náms í skólanum, bæði til sveinspróf og stúdentsprófs. Nemendur heimsóttu meðal annars Stýrimannaskólann og fengu að stýra skipi undir Stórabeltisbrú í hermi. Þau kíktu í Margmiðlunarskólann og sáu svokallaðan „green screen“ sem notaður er til að […]
Slökun í 2.bekk
Í dag, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 10:00 hugleiddu börn í 35 skólum á Íslandi. Nemendur í 2. BH tóku þátt í deginum og fóru í smá slökun í taekwondó salnum. Börnunum fannst þetta virkilega skemmtilegt og voru áhugasöm og dugleg í slökuninni.