7. bekkur, allur á hjólum
7. bekkur fór í hjólatúr að Ljónsstöðum með kennurum sínum í morgun. Þau kíktu á lömbin í sveitinni og léku sér saman í góða veðrinu. Allir skemmtu sér hið besta.
Boltalausar íþróttir
Valhópurinn í Boltalausum íþróttum fór í hjólaferð um Votmúlann fimmtudaginn 21.maí. Í þeirri ferð sem var um klukkustund fengu þau að kynnast hinum ýmsu veðrum s.s sól, rigningu og haglél. Það var ansi kalt en þrátt fyrir það skemmtu þau sér vel og voru til fyrirmyndar.
Verk- og tækninám – nema hvað?
Hér að neðan er hlekkur á kynningarefni sem Samtök iðnaðarins sendu til nemenda í 10. bekk grunnskóla. Kynningarefnið er stílað á bæði nemandann og forráðamann hans. Árið 2013 var ákveðið að þróa efni á vefsíðu Samtaka iðnaðarins og nú 2014 var hönnuð sérstök vefsíða í þeirri trú að þannig muni efnið höfða frekar til nemenda. […]