Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Laust starf aðstoðarskólastjóra við Sunnulækjarskóla

By Hermann | 4. maí 2014

Staða aðstoðarskólastjóra við Sunnulækjarskóla er laus til umsóknar    Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf grunnskólakennara, góða stjórnunar- og skipulagshæfileika, mikla hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.  Þekking og færni á sviði stjórnunar í opnum skóla með áherslu á teymisvinnu og einstaklingsmiðaða nálgun er mikilvæg, ásamt áhuga á þróunarstarfi og færni í að leiða teymisvinnu.  […]

Grunnskólamót í sundi

By Hermann | 14. apríl 2014

Sunnulækjarskóli tók þátt í grunnskólamóti í sundi sem fór fram í Laugardalslauginni og stóðu þau sig frábærlega og voru sér og sínum til sóma. 19 skólar tóku þátt en keppt var í tveimur flokkum; 5-7. bekk og 8-10. bekk og synt var í 8×25 metra boðsundi með frjálsri aðferð. 17 lið voru í yngri flokknum […]

Laust starf við skólavistun

By Hermann | 10. apríl 2014

Stuðningsfulltrúa vantar í 50% stöðu e.h. á Hóla, skólavistun Sunnulækjarskóla.    Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.  Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2014  Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra, birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjarskóli, Norðurhólum 1, 800 Selfoss. Skólastjóri  

Stóra upplestrarkeppnin

By Hermann | 8. apríl 2014

Föstudaginn 4. apríl fór úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi fram í Þorlákshöfn. Mikill metnaður er lagður í keppnina og óhætt að segja að nemendur séu sífellt að mæta betur og betur undirbúnir.  Allir keppendur stóðu sig með prýði og voru skólum sínum til sóma.  Fyrir hönd Sunnulækjarskóla kepptu Aldís Elva Róbertsdóttir, Guðjón Leó Tyrfingsson, Haukur Hjartarson og  Veigar Atli Magnússon. […]

Litla upplestrarkeppnin

By Hermann | 1. apríl 2014

Í haust var ákveðið að setja Litlu upplestrarkeppnina fyrir 4. bekk af stað hér í Árborg og nærsveitarfélögum. Litla upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og byggir á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er reglulega í 7. bekk. Meginmarkmið keppninnar er að nemendur flytji íslenskt mál sjálfum sér og öðrum til ánægju og að þeir […]