Öskudagur við Sunnulæk
Það var mikið fjör og mikið gaman á Öskudegi í Sunnulækjarskóla. Dagurinn hófst með söngstund þar sem allir sungu saman nokkur lög. Lokalagið var „Enga fordóma“. Nemendur tóku mjög vel undir og fylgjast greinilega vel með. Síðar um daginn var svo spurningakeppni á elsta stigi sem 10 TDI vann naumlega. Alls staðar ríkti gleði og […]
Kynning á framhaldsskólum í heimabyggð
Kynning á framhaldsskólum í heimabyggð verður haldin í Fjallasal fyrir forráðamenn og nemendur í 9. og 10. bekk í Sunnulækjarskóla, fimmtudaginn 27. febrúar kl. 18:00. Námsráðgjafar, sviðsstjórar og fulltrúar nemendafélaga Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans að Laugarvatni koma og kynna námsframboð og starfsemi skólanna. Við hvetjum foreldra til að mæta með börnum sínum en búast má […]
Fyrirlestur um netnotkun
Þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi stendur forvarnarteymi Árborgar, grunnskólarnir á Selfossi og foreldrafélög grunnskólanna fyrir fræðslufyrirlestri um internet- og nýmiðlanotkun í samstarfi við samtökin SAFT og Heimili og Skóla. Fyrirlesturinn verður í Fjallasal og hefst kl 20:00. Nánari upplýsingar má finna hér: SAFT_fyrirlestur
Stríðsárin í 7. bekk
Í tilefni þess að verið er að fjalla um seinni heimsstyrjöldina í samfélagsfræði í 7. bekk voru eldri borgarar beðnir um aðstoð við fræðsluna. Vel var brugðist við og mætti vaskur hópur til aðstoðar. Nemendur höfðu undirbúið spurningar fyrir gestina og auk þeirra spunnust skemmtilegar umræður um stríðið. Mikla athygli vakti hermannahjálmur sem einn gestanna hafði […]
Starfsdagur 24. febrúar og foreldradagur 26. febrúar
Mánudagurinn 24. febrúar, er starfsdagur í Sunnulækjarskóla. Þennan dag munu kennarar nota til að ganga frá námsmati miðannar. Nemendur mæta því ekki í skólann þann dag. Skólavist er opin en skrá þarf börn sérstaklega þennan dag. Námsmatsblöð haustannar verða send heim með nemendum þriðjudaginn 25. febrúar. Foreldrar og nemendur mæta í viðtöl miðvikudaginn 26. febrúar. […]